Miđvikudagur, 5. september 2012
Mensalder Raben Mensaldersson
Bjarni Harđarson, bóksali, rithöfundur, blađamađur og fyrrverandi upplýsingafulltrúi Sjávarútvegs og Landbúnađarráđuneytisins heitins er ávallt međ mörg járn í eldinum. Eitt ţeirra járna sem hann hefur nú dengt er ný bók sem heitir ţví forvitnilega nafni Mensalder
Bókin fjallar um afar sérstakt lífshlaup bóndans á Húsum í Ásahreppi, Mensalders Rabens Mensalderssonar sem fćddist áriđ 1888 og dó 1980.
Nafn mannsins og bókarinnar eitt sér er nćgilegt til ađ vekja forvitni lesandans og víst er um ađ ţessi bókartitill hefđi ekki getađ orđiđ til eftir ađ s.k. Mannanafnanefnd tók til starfa.
Mensalder Raben Mensaldersson er vissulega ekki Bjartur í Sumarhúsum Kiljans né heldur Ofviti Ţórbergs Ţórđarsonar en skyldleikinn, ćttarsvipurinn međ ţeim félögum er bćđi skýr og greinilegur.
Gunna í Húsum, unnusta Mensalders hefur örugglega ekki lesiđ nýjar "Fantasíur" Hildar Sverrisdóttur, en hún ber samt sömu kenndir og ţar er hampađ. Og Gunna okkar í Húsum fćr útrás fyrir ţessar langanir og ţrár á sinn hátt bćđi í draumi og veruleika.Ástir og örlög, basl og breyskleiki taka dýfur í mannlegri reisn og vegast á í lifandi texta sem leiftrar af frásagnargleđi höfundar.
Orđsnilld Bjarna Harđar svíkur engan.Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:52 | Facebook
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.