Sunnudagur, 15. janúar 2012
Stóra-fiskveiðifrumvarpið og SLYS Samfylkingarinnar
Ég gerði athugasemd strax við stjórnarmyndun vorið 2009 við þá kröfu Samfylkingarinnar að forræði starfshóps sem átti að fjalla um grundvallar breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu yrði hjá Samfylkingunni en ekki Vinstri Grænum, flokki sjávarútvegsráðherra. Að kröfu Samfylkingarinnar var Guðbjartur Hannesson, nú velferðarráðherra tilnefndur formaður starfshópsins.
Hópnum var fyrst gert að skila 1. sept. sama ár , síðan 1. nóv en starf hans dróst og dróst. til 1. sept 2010 Ég var ítrekað kominn á fremsta hlunn með að leysa upp starfshópinn þannig að ég gæti farið að vinna að málinu, en þá var alltaf rekið upp mikið ramakvein hjá forystumönnum ríkisstjórnarflokkanna. segir Jón.
Þegar Guðbjartshópurinn hafði skilað af sér ári síðar en ráðgert var tók við vinna í ráðuneytinu. Jafnframt var þá um haustið skipuð 6 manna nefnd þingmanna stjórnarflokkanna sem reyndi að ná samkomulagi um megináherslur frumvarpsins. Gekk þar á ýmsu. Í lok febrúar á síðasta ári komu auk þingmannanna ,ráðherrarnir Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon, og síðar Guðbjartur Hannesson einnig að málinu.
Þá hófst aftur verulegt skæklatog, sem endaði með því að gengið var frá frumvarpi til nýrra heildarlaga um miðjan maí sl., segir Jón, sem ríkisstjórnin stóð öll að. Þetta frumvarp fór fyrir alþingi og eftir ítarlegar umræður til sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar sem sendi það út til umsagnar.
Vissulega var Stóra frumvarpið í mörgu mjög róttækt og hlaut að mæta harðri gangrýni þeirra sem töldu sig eiga sjávarauðlindina. En ýmsu var bætt inn í frumvarpið á síðustu metrum í ríkisstjórn að kröfu fulltrúa Samfylkingar sem mér var ekki allt að skapi. Þeir hinir sömu voru fljótir að hlaupast frá frumvarpinu þegar gagnrýnin kom fram og aðrir Samfylkingarráðherrar sem að því stóðu töluðu um slys.
Málið var nú komið til þingsins í hendur sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar sem hafði forsjá á því frá því í byrjun júní og til loka september- 4 mánuði án þess að nokkur vinna væri unnin af hálfu nefndarinnar.
Frumvarpið kom loks aftur til ráðuneytisins í byrjun október sl. haust og á rúmum fjórum vikum var farið yfir umsagnir og athugasemdir við upphaflega frumvarpið og á grundvelli þessara gagna vann hópur á vegum ráðuneytisins tillögur að heildstæðu frumvarpi, sem lagt var fram í ríkisstjórn sem vinnuskjal ásamt öðrum gögnum um miðjan nóvember.
Ég fór með þessar vinnutillögur inn í ríkisstjórn í nóvember og óskaði eftir að fá að taka þær til umræðu ásamt athugasemdum við upphaflega frumvarpið og síðan ræða málið í þingflokkum, meðal almennings og hagsmunaaðila áður en gengið yrði í að semja endanlegt frumvarp.
Mér var hins vegar meinað að kynna málið efnislega í ríkisstjórn og því var hafnað að ég fengi að fara með það fyrir þingflokkana og ræða málið þar. En af hálfu ráðuneytisins var það sett til almennrar kynningar á vef þess í lok nóvember. Í framhaldinu ákvað forsætisráðherra að setja á sérstaka ráðherranefnd Guðbjarts Hannessonar og Katrínar Jakobsdóttur til að fara yfir þessar vinnutillögur. Ég mótmælti og sagði þetta óeðlileg og í raun fáránleg vinnubrögð og aðeins gert til að tefja málið.
Varð ég auk þess fyrir vonbrigðum með að samflokksráðherra minn Katrín Jakobsdóttir skyldi þá taka þátt í þessari aðför. Ekki vissi ég af sértækri þekkingu hennar á stjórn fiskveiða. En ég gerði mér jafnframt ljóst að inngrip forystumanna ríkisstjórnarflokkanna lutu að afstöðu minni í öðrum málum en ekki af umhyggju fyrir breytingum á fiskveiðistjórninni.
Forsætisráðherra gaf ráðherranefndinni upphaflega ein vika til þessarar vinnu, en þau eru enn að.
Þegar á heildina er litið hefur Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið haft Stóra fiskveiði frumvarpið í sínum höndum um fjóra til fimm mánuði af þessum liðlega 30 sem ríkisstjórnin hefur setið.
( Byggt á viðtali, Ágúst Ingi Jónsson, Mbl. ræðir við Jón Bjarnason 7. janúar 2012)
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 16.1.2012 kl. 10:52 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.