Fimmtudagur, 12. janúar 2012
VG getur enn rétt af kúrsinn
Ef okkar flokkur færist aftur á réttan veg og stendur vörð um þau gildi sem hann er stofnaður um, félagsleg, umhverfisleg, samfélagsleg og jafnréttisleg og síðam fullveldi Íslands þá þarf ekki að stofna aðra flokka á þessum væng stjórnmálanna. Það eru verkin sem tala í þessu. Það dugar ekki að flokkar gangi langt frá stefnu sinni í framkvæmd og hafa hana bara til spari í orðum.
Ef við ekki réttum okkar kúrs í pólitík VG þá koma aðrir sem vilja taka þann fána. Þess vegna er svo brýnt að rétta af kúrsinn og hvetja það fólk sem stóð að því að byggja upp hugsjónir þessa flokks að láta ekki deigan síga, láta ekki mæðast, heldur taka slaginn og rétta flokkinn við. Hann hefur villst af braut, um það er ekki vafi, og á skoðanakönnunum sjáum við að fylgið hefur minnkað mikið frá síðustu kosningum. Flokkurinn verður að fara inn á þá braut sem hann var stofnaður til.
... Það lenda allir flokkar í þeim vandræðum að forystumenn þeirra villast af leið, en þá er bara að skifta þeim út eða kippa þeim inn á sporið aftur. Ég hef ekkert breyst, hugsjónirnar eru þær sömu, viljinn og löngunin til að hafa áhrif. Ég er sáttur við þau tækifæri sem ég hef fengið sem ráðherra og þingmaður og er tilbúinn að verja áfram kröftum, þreki og hugsjónum í þágu þess málstaðar sem ég hef barist fyrir með fjölmörgu góðu fólki.
(Ágúst Ingi Jónsson, Mbl. ræðir við Jón Bjarnason 7. janúar 2012)
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.