Fimmtudagur, 12. janúar 2012
Norrænt velferðarkerfi?
Ég tel að það hafi verið gengið alltof langt í niðurskurði og að við höfum farið frá grunnggildum VG, t.d. félagslegum, velferðarlegum og byggðalegum. Svo ekki sé nú talað um heilbrigðisþjónustuna almennt og heilbrigðisstofnanir úti um allt land. Ég tel að við höfum gefið of mikið eftir og hef gagnrýnt það í ríkisstjórn. Með forgangsröðun ríkisstjórnarinnar hefur verið sveigt frá hugsjónum VG, sem ég hef reynt að standa vörð um.
... Samfylkingin er upprunnin í gamla Alþýðuflokknum, sem hafði litlar mætur á íslenskum landbúnaði og málefnum landsbyggðarinnar. Andstaðan ýmissa á þeim bæ gegn mér kom mér því ekkert sérstaklega á óvart. Þar er þó gott fólk innanborðs en í Samfylkingunni eru líka margir sem skilja ekki í hverju fæðuöryggi þjóðar er og leggja meiri áherslu á takmarkalausan og hömlulausan innflutning heldur en að standa vörð um íslenska landbúnaðarframleiðslu.
(Ágúst Ingi Jónsson, Mbl. ræðir við Jón Bjarnason 7. janúar 2012)
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.