Þjóðaratkvæði um " Bókun 35"

Enn á ný er  flytur utanríkisráðherra tillögu um framsal á íslensku dómsvaldi til  erlendra ríkjasambanda og dómstóla  ESB/EES

 Stjórnarskrárbrot

 Að mati óvilhallra lögspekinga og stórs hluta almennigs  er  hér um stjórnarskrárbrot að ræða nái tillagan fram að ganga

 Hún mynd skerða stóran þátt í fullveldi Íslendinga.

 Beiting 71. greinar þingskapa á meint stjórnarskrárbrot væri siðlaus 

Forseti Alþingis  beitti 71. grein þingskaparlaga í sumar til þess að stöðva umræður og ganga til atkvæða á Alþingi um stórt skattamál.

Það frumvarp var þó ekki talið vera brot á stjórnarskrá þótt mjög umdeilt væri

Þjóðaratkvæði 

Hinsvegar virðist sem forseti þingsins og meirihlutinn sé reiðubúinn að beita slíku vopni gegn lýðræðinu og fullveldinu.

Það væri gríðarleg valdníðsla að beita því ákvæði um mál sem snerti beint stjórnarskrá landsins og fæli í sér framsal á grundvallar rétti fullveldis.

Forsætisráðherra lýsti því ufir í upphafi ferils síns að hún teldi ekki forgangsmál að kljúfa þjóðina með  ESB aðild eða  meintum stjórnarskrárbrotum 

Sé það einbeittur vilji utanríkisráðherra og ríkisstjórnar að efna til þessa ófriðar gegn þjóðinni og fullveldinu með "Bókun 35" er það skýlaus krafa að þjóðin fái að greiða atkvæði um  slíkt fullveldisframsal


Bloggfærslur 18. september 2025

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband