Jón Bjarnason
Jón Bjarnason
Eftir Jón Bjarnason: "Við unnendur Jökulsánna í Skagafirði krefjumst þess að vatnasvið Héraðsvatna, Jökulsárnar í Skagafirði, verði áfram í vernd."

Hart hefur verið barist fyrir friðlýsingu og vernd Jökulsánna í Skagafirði.

Í raun hafa Héraðsvötnin verið eitt sterkasta flagg Vinstri-grænna og annarra náttúruverndarsinna í náttúruverndarmálum.

Vernd jökulsánna í Skagafirði og annarra dýrmætra náttúruvætta landsins var eitt af þeim málasviðum sem Vg var stofnað um í upphafi. Verkefnastjórn rammaáætlunar mat síðar verndargildi vatnasvæða Héraðsvatna eitt það mesta á landinu.

Það var öflugur þingmannahópur, m.a. með núverandi forsætisráðherra innanborðs, sem flutti ítrekað tillögur um friðun Jökulsánna í Skagafirði. Heimafólk fagnaði og treysti að hugur fylgdi máli. 

Kúvending í náttúruverndarmálum

Það kemur því sorglega á óvart að nú skuli ríkisstjórn undir forystu VG hafa kúvent í náttúruverndarmálum og sett friðun Jökulsánna í Skagafirði í uppnám. Faðmlög og dýrar yfirlýsingar áttu sér ekki mikla innstæðu. Tillagan sem nú er verið að keyra í gegnum alþingi þessa dagana um svokallaða rammaáætlun er döpur. 

Héraðsvötnum fórnað

Tillagan nú hljóðar upp á að fella Héraðsvötnin í Skagafirði úr verndarflokki í biðflokk til frekari virkjunarundirbúnings – þvert á grundvallarstefnu VG og digrar yfirlýsingar og áratuga baráttu. Fleiri dýrar náttúruperlur eru undir í landinu sem héldu sig vera hólpnar.

Með djúpa hryggð í hjarta er þessi grein skrifuð í nafni baráttunnar fyrir friðun Jökulsánna. 

Jökulsárnar í Skagafirði

Verndun Jökulsánna var margítrekuð í landssamþykktum Vg og staðfest m.a. með meðfylgjandi þingsályktun 2008. Við vorum stolt og glöð: 

„Verndun Jökulsánna í Skagafirði.

59/135 2008 þáltill.: friðlýsing Austari- og Vestari-Jökulsár í Skagafirði.

Flm.: Jón Bjarnason, Atli Gíslason, Álfheiður Ingadóttir, Árni Þór Sigurðsson,

Katrín Jakobsdóttir, Kolbrún Halldórsdóttir, Steingrímur J. Sigfússon,

Þuríður Backman, Ögmundur Jónasson. 

Tillaga til þingsályktunar 2008 um friðlýsingu Austari- og Vestari-Jökulsár í Skagafirði.

Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að undirbúa og leggja fyrir Alþingi frumvarp til laga um friðlýsingu vatnasvæðisins norðan Hofsjökuls, þ.e. Austari- og Vestari-Jökulsár í Skagafirði ásamt þverám þeirra.

Friðlýsingin taki til vatnasviðs ánna að meðtöldum þverám og skal hvers kyns röskun á náttúrulegum rennslisháttum ánna vera óheimil. Skal svæðið friðað og stjórnað til varðveislu landslags þess, náttúrufars og menningarminja ásamt því að það verði notað til útivistar, ferðaþjónustu og hefðbundins landbúnaðar. Sérstaklega skal hugað að því við undirbúning málsins hvernig friðlýsing vatnasvæðanna norðan Hofsjökuls geti tengst framtíðaráformum um Hofsjökulsþjóðgarð og fallið að stækkuðu friðlandi Þjórsárvera sunnan jökulsins. 

Greinargerð

Frá Hofsjökli renna árnar Austari- og Vestari-Jökulsár. Þegar þær koma saman kallast þær Héraðsvötn en þau eru meginvatnsfallið í Skagafirði. Koma Jökulsárnar saman við bæinn Kelduland. Báðar árnar renna í gljúfrum og er gljúfur Austari-Jökulsár öllu hrikalegra en þeirrar vestari. Náttúrufegurð jökulsárgljúfranna er einstök, svo og gróður, landslag og náttúrufar á vatnasvæði ánna.

Hér er gert að tillögu að ríkisstjórnin leggi fyrir Alþingi frumvarp til laga þess efnis að árnar og vatnasvið þeirra verði friðlýst með lögum. Með hliðsjón af flokkunarkerfi hinna alþjóðlegu náttúruverndarsamtaka IUCN er lagt til að svæðið geti fallið að V. friðlýsingarflokki. Nánari skilgreining þessa verndarstigs er á þessa leið: „Landsvæði, ásamt strönd eða sjó eftir því sem við á, þar sem samskipti manns og náttúru í gegnum tíðina hafa gert svæðið sérstætt, fagurfræðilega, vistfræðilega og/eða menningarlega, og gjarnan með mjög fjölbreyttu lífríki. Varðveisla þessara hefðbundnu samskipta í heild sinni er nauðsynleg fyrir verndun, viðhald og þróun slíks svæðis.

 Skín við sólu Skagafjörður

Segja má að viðhorf þeirra sem vilja vernda vatnasvæði ánna speglist vel í ljóðlínum Stefáns Vagnssonar frá Hjaltastöðum (1889-1963) úr kvæðinu Blönduhlíð: 

Meðan „Vötnin“ ólgandi að ósum sínum renna,

iðgrænn breiðist gróður um sléttur, hæð og laut,

geislar árdagssólar á bröttum tindum brenna,

blessun Drottins ríkulega falli þér í skaut. 

Augu æ fleiri eru að opnast fyrir verðmæti ósnortinnar náttúru og ábyrgð okkar gagnvart komandi kynslóðum. Náttúran á sinn eigin sjálfstæða rétt. Við höfum hana að láni frá komandi kynslóðum.

Jökulsárnar í Skagafirði eru mikilvægar fyrir lífkerfi héraðsins frá jöklum til sjávar. Vötnin hafa ekki aðeins mótað skagfirska náttúru heldur einnig skagfirska menningu og daglegt líf. Þau eru lífæð Skagafjarðar.

Í ljósi þessa er þingsályktunartillagan um friðun Austari- og Vestari-Jökulsár flutt.“ 

Vernd Jökulsánna – baráttan heldur áfram

Héraðsvötnin og Jökulsárnar í Skagafirði voru síðan metin í hæsta verndarflokki hjá Verkefnastjórn rammaáætlunar. Því faglega mati er alþingi nú að hnekkja með pólitískum hrossakaupum.

Við unnendur Jökulsánna í Skagafirði krefjumst þess að vatnasvið Héraðsvatna, Jökulsárnar í Skagafirði, verði áfram í vernd.

Höfundur er fyrrverandi bóndi, þingmaður, ráðherra og skólastjóri á Hólum í Hjaltadal.

Höf.: Jón Bjarnason