Sykurhús Hans og Grétu

Trúverðugleiki  stjórnar Vg og Samfylkingar 2009 fór með ESB umsókninni

Eftir að formennirnir í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur 2009  gerðu aðild að ESB sem sitt aðalmál var trúverðugleikinn brostinn.

Ég sat í þeirri ríkisstjórn og var mjög andvigur ESB umsókninni

Enda gekk sú umsókn þvert á stefnu Vg og loforð.

Trúverðugleikinn brast.

Hvorugt formanna flokkanna vissu hvað fólgst í ESB umsókn

Ég kynntist því sem ráðherra að hvorugt formannna Vg eða  Samfylkingar virtust vita á þeim tímapúnkti í hverju unsókn að ESB  væri fólgin eða hver ferillin væri í slíkri umsókn. 

Heldu þau í barnaskap að Ísland  réði ferðinni og gætu valið sér einstaka bita úr köku ESB.

Skilyrði ESB liggja öll fyrir. Það er annað hvort allt eða ekkert.

Umsóknin var skilyrðislaus. Enda tekur ESB ekki við öðru.

Hægt er að semja um  tímabundna fresti frá innleiðingu  á einstaka þáttum 

En engar varanlegar undanþágur eru í boði enda þyrftu þá hvert einstakt ríki að samþykkja það fyrir sig sem er ekki í boði í aðlögunarferlinu.

Að lenda í díkinu

Því miður óttast ég að núverandi forsætisráðherra sé að lenda í sama díkinu og Jóhanna Sigurðardóttir 2009. 

Kristrún  einmitt lofaði bæði í eigin formannslag og fyrir kosningar því að ESB umsókn yrði ekki aðal mál  á dagskrá næstu ríkisstjórnar undir sinni forystu.

Hún ætlaði sér ekki að kljúfa þjóðina með sama hætti og Jóhönnustjórnin gerði.

Að setja  "Bókun 35" um framsal á dómsvaldi til EES/ ESB  sem fyrsta mál ríkisstjórnar var mikill afleikur.

Með einn ríkisstjórflokkinn yfirlýst alfarið á móti.

Og strá síðan salti í einingu þjóðarinnar með óábyrgu tali um þjóðaratkvæðagreiðslu um  ESB 

Fyrst þarf að breyta stjórnarskrá sem heimilar framsal til ESB

Það verður ekki sótt um aðild að ESB nema að breyta fyrst  stjórnarskránni. 

Þessu gerði þó Jóhanna Sigurðardóttir og hennar ráðgjafar sér grein fyrir 2009

Þess vegna var lögð þung áhersla á að fara í stjórnarskrárbreytingu strax vorið 2009.

 Stjórnarskrár breyting sem heimilar slíkt framsal til erlends ríkjasambands  var algjör forsenda ESB umsóknar.

Sama gildir um að innleiða ESB lög og reglur í bútum eins og framsal dómsvalds með " bókun 35" 

Virðing fyrir stjórnarskráinni er helgidómur þjóðarinnar 

Með þessari ofuráherslu á ESB umsókn og " Bókun 35" verða nánast öll mál  ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins  dæmd til þess að verða skönnuð varðandi fullveldisframsal og liðir í ESB umsókn. 

Forsætisráðherra þarf strax að taka í taumana, stöðva umræðu um fullveldisframsal, hugsanleg brot á stjórnarskrá  og ESB umsókn ef hún ætlar að njóta áfram þess trúverðugleika sem hún svo örugg lagði upp með bæði í formannssslagnum og í síðustu alþingiskosningum 

Sykurhús Hans og Grétu

Að byggja traust sitt á dómurum eða skriffinnum sem hafa tútnað út og belgt kviðinn  við veisluborðin og makindin í Brussel  er  þjóðinni ekki farsælt

 

 


Bloggfærslur 21. júní 2025

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband