Bókun 35 - Af því bara !

Að sýna Vald sitt með bókun 35 og framsali íslensks dómsvalds

Sagt er að Trump hafi jafnvel sjálfur látið setja mótmælin af stað í Kalíforníu til þess að geta sett þjóðvarðliðið inn og sýnt fram á Vald sitt yfir ríkisstjóra Kaliforníu.

Bókun 35  frá ESB um framsal á dómsvaldi til EES/ ESB  er af sama meiði.

Að sýna Íslendingum hvar valdið sé.

Alltaf eru til einhverjir sem beygja sig fyrirfram undir valdið og pískinn  til þess að vera "memm" við borðið

"Vér mótmælum allir" sagði Jón Sigurðsson við sömu kröfum 1851

Að bogna fyrir erlendu valdi

Þegar að EES reglur eða lög þeim afleiddar  skarast við íslensk lög og reglur skulu EES sjálfkrafa ráða og íslenskir dómstólar víkja.

Spurt var á Aþingi til hvers þarf að innleiða bókun 35 í lög  hér.

Flutningmenn gátu ekki svarað  því beint

- "Barra af því bara. ESB biður okkur um það" _ 

EES samningurinn hefði  trúlega adrei verið samþykktur  1993 ef  "Bókun 35" hefði verið hluti hans.

Stjórnarskráin er ekkert Selskapsmál í kvöldverði hjá  ESB

 Hvers vegna er nú verið að koma aftan að þjóðinni með þessu fullveldisframsali og hugsanlegu broti á stjórnarskrá.

Þegar spurt er hvaða nauðir rekur til 

Er svarið . "Bara af því bara  ESB biður okkur um það".

Annars  fáum kannski ekki að mæta í kvöldverðinn!.

 Stöndum vörð um fullveldið og stjórnarskrána


Bloggfærslur 12. júní 2025

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband