Þriðjudagur, 7. október 2025
Sjálfstæðið er sívirk auðlind
" Dýrmætasta auðlindin er sá lífsins kraftur sem felst í sjálfstæði þjóðarinnar og íslenskri tungu"
Ragnar Arnalds alþingismaður, ráðherra, formaður Alþýðubandalagsins og fyrsti formaður Heimsýnar tók saman í bók rökin fyrir því að Ísland eigi ekki að ganga í Evrópusambandið.
- Evrópusambandið stefni á sameinað ríkjasamband sem lúti miðstjórn frá höfuðstöðvunum í Brussel.
"Á örskömmum tíma lyftir þjóðin sér úr örbirgð sem eitt af fátækustu löndum Norðurálfu í að verða eitt öflugasta ríki efnahags og velmegunar".
" vegna þess að við tryggðum okkur rétt til sjálfstæðra ákvarðanataka í eigin þágu og gátum því aftur og aftur brugðist við nýjum aðstæðum þegar mest lá við óháð öðrum ríkjum"
Í kvöld klukkan 8 í Iðnó verður ráðstefna, málstofa um "Bókun 35" varðstaða og sókn fyrir fullveldi Íslands og gegn áformum um að troða okkur inn í Evrópusambandið.
Ég mun þar stikla á nokrum atriðum frá reynslu minni í samningum við ESB og baráttunni fyrir sjálfstæði landsins er ég var ráðherra 2009 til 2011.
Og hvernig tókst að stöðva það aðildarferli sem sett var í gang á þeim árum.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)