Miðvikudagur, 29. janúar 2025
" Hippamussu"- Körfuboltaþjálfari
Orðfarið og hugarástand körfuboltaþjálfarans er alvarlegt umhugsunarefni eftir tap liðsins
Á Vísis er viðtal við þjálfarann eftir leik Aþenu í Breiðholti og Þórs á Akureyri.
Ef þetta var "helgislepja" sem hann viðhafði við fréttamanninn, hvernig var þá orðbragðið inni í klefa stúlknanna.
Ég var náttúrulega bara að drulla yfir nokkrar stelpur.
Tala um hvað þetta væri karakterslaust og bara lítið að gerast þar.
Við töpuðum þessu bara á karakter sko, við eigum alveg að geta hangið í þeim.
Það verður samt að gefa Þór kredit, þetta er sennilega best spilandi lið í deildinni.
Við fengum smá kennslustund og ég vona að mínar stelpur hafi lært eitthvað.
Sagði Brynjar, aðspurður hvað hann hafði sagt inni í klefa eftir leik.
Og Þjálfarinn gefur ekki eftir:
"Eðlislægur aumingjaskapur"
Þið finnið leiðir til þess segirðu, er það þá bara eitthvað eðlislægt hjá þínum konum eða?
Já það virðist vera. Það er eitthvað sem er erfitt að taka með á koddann.
Ég meina, í alvöru, við eigum að vera búin að taka eitthvað af þessum leikjum sko. Í alvöru, það hlýtur að vera hægt að klára eitthvað af þessu bara á karakter, en það er bara þannig.
Áfram heldur þjálfarinn
Hippamussukomment
Brynjar baðst svo afsökunar á því að blóta oft í viðtalinu, hann væri bara svo vanur því að nota slíkt orðalag í leikjum.
Sem er sannarlega rétt og vakti spurningu um hvort hann hafi prófað að beita einhverjum öðrum aðferðum en blótsyrðum og öskrum.
Hvaða hippamussukomment er þetta? Get a life.
Þetta eru bara alvöru stelpur hérna, myndirðu spyrja einhvern að þessu í karlaboltanum?
Já var svarið við þeirri spurningu.
Ég er langbesti körfubolta þjálfari á landinu og það vita það allir - Vísir
Skotið fast á fréttamanninn
Þú ert pottþétt nýr í þessu, þetta er svona í strákaboltanum sko, sagði Brynjar að lokum en krafðist frekari útskýringa á síðustu spurningunni eftir að slökkt hafði verið á upptökutækjum."
Eðlilegt er að gera kröfur og hvetja lið sitt
Mér sjálfum finnst þetta hinsvegar vítaverð framkoma og orðbragð þjálfarans.
Því miður virðist lítið aðhald vera í háttsemi þjálfara við þjálfun og keppni hjá um ungu íþróttafólki.
Mér verður hugsað til þess hvort Þórir Hergeirsson hefði komist langt með sínu líði með þessu hugarfari og orðfæri.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 29. janúar 2025
Efni
Færsluflokkar
Bloggvinir
- ernabjarnad
- andreaolafs
- ingibjorgelsa
- valgeirb
- hlynurh
- saemi7
- saedis
- birgitta
- baldis
- polli
- bjarkey
- bjarnihardar
- brell
- einarolafsson
- ellikonn
- erlan
- esbogalmannahagur
- gutti
- mosi
- alit
- gullilitli
- gullvagninn
- gustafskulason
- heidistrand
- hildurhelgas
- hilmardui
- drengur
- hreinsamviska
- ingolfurasgeirjohannesson
- bestiheimi
- svartur
- joiragnars
- jonvalurjensson
- juliusvalsson
- kraekiber
- kristinm
- fullveldi
- brv
- vefritid
- vest1
- hallormur
- steinibriem
- toti1940
- torduringi
- iceberg
- thuridurbjorg
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.1.): 436
- Sl. sólarhring: 491
- Sl. viku: 570
- Frá upphafi: 399563
Annað
- Innlit í dag: 425
- Innlit sl. viku: 531
- Gestir í dag: 419
- IP-tölur í dag: 409
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar