Heilbrigt og réttlátt samfélag

472020425_9017382434983401_7142973305139015390_n  Aldrei hefur ábyrgðarlausari né óheilladrýgri stjórn  farið með völd í landinu, aldrei  hefir verið stjórnað af minni fyrirhyggju  um fjárhag og dýrtíðar mál"

Er einkunn sem ein ríkisstjórn eftirstríðsáranna fær.

Hermann var þá í  stjórnarandstöðu.

  Árin eftir seinna stríð, fyrir og kringum 1950 voru ein verstu með mikilli dýrtíð, gjaldeyrisskorti og vöruskömmtun.

Mæðiveikin herjaði á sauðfé landsmanna með stórfelldum niðurskurði á sauðfé í heilum landshlutum

Og Hermann vandar andstæðingum sínum ekki kveðjurnar og varar við skyndilausnum

Augnabliks "sölur" engin lausn 

"Sölur á félagslegum eignum eru bara augnabliks fyrirbæri, en málefnin ein varanleg

Ef þjóðmálastefnan er röng  lifa menn ekki lengi á "sölum".

Það sem skiptir máli fyrir varanlega hagsmuni allra manna í þessu landi er að útrýma hinni auðnuleysis - legu og  auðvirðilegu spillingu sem vex kringum skammsýna hæfileikalitla spákaupmenn og niðurlægir og vanvirðir fólkið, - en hefja  í þess stað sókn gegn spillingunni með samtakamætti fólksins, mistökum þess og höppum, sókn sem byggð er á jafnrétti.

Þar sem enginn kaupir annan fyrir ófrjálst fé, en hver horfir í augu annars sem frjáls  og heiðarlegur maður og félagi sem keppir að því marki með heiðarlegum  vinnubrögðum að skapa heilbrigt og réttlátt samfélag.

Þá menn sem þannig hugsa, þannig finna til, bið ég að leggja ótrauða lið með mér til orustu við þau öfl sem nú herja Strandasýslu - og byrjuðu starf sitt með sjónhverfingum".

(Sjálfstæðismenn byrjuðu kosningabaráttu á Ströndum með sýningum á "Baldri og Konna" sem voru mjög vinsælt skemmtiatriði á þeim árum).

Með vinsemd og virðingu Hermann Jónasson

 Efrtirmáli 

Hermann náði að sjálfssögðu góðu kjöri.

Glímukóngur Íslands með pottþétt fylgi Strandamanna.

Mér fannst gaman að rekast á þetta bréf Hermanns en hann var eins og heimagangur á fjölmennu sveitaheimili, Asparvík - norður á Ströndum í áratugi.

Hvernig sem svo Hermanni Jónassyni  gekk að framfylgja þessum draumum sínum um herlaust Ísland, laust við spillingu og hver gæti horft í augun á öðrum með reisn  og virðingu- 

Fullvalda - Réttlátt Samfélag. 

Það er svo annað mál. En víst er að til þess hafði hann öflugan stuðning Strandamanna á þessum árum

 


Bloggfærslur 10. janúar 2025

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband