Miðvikudagur, 24. apríl 2013
Að elska, byggja og treysta á landið

Regnboginn eru samtök fólks, sem býður fram til baráttu fyrir því að halda sjálfstæði og fullveldi þjóðarinnar, fyrir sjálfbæra þróun og náttúruvernd. Við leggjum áherslu á jafnrétti fólks óháð búsetu, bætt lífskjör almennings, mannréttindi og félagshyggju.
Við viljum að fullveldi Íslands sé tryggt. Sjálfstæði þjóðarinnar er ekki leikfang eða skiptimynt í samskiptum við erlend stórveldi eða ríkjasambönd.
ESB - hættuspil
Aðildarviðræður við ESB hófust í trássi við vilja þjóðarinnar. Brýnt er að stöðva aðlögunarferlið að ESB og afturkalla umsóknina. Annað er leikur að eldi. Fulltrúar ESB hafa ítrekað lýst því yfir að ekki verði um neinar varanlegar undanþágur að ræða af þeirra hálfu frá lögum og reglum ESB. Aðeins er hægt að fá tímabundna aðlögun. Minna þeir á að það var Ísland sem sótti um aðild að ESB en ekki öfugt. Að sjálfssögðu vill ESB ná tangarhaldi á auðlindum okkar, fiskimiðunum, orkunni og fá gegnum Ísland aðgang að norðurhöfum. Menn geta velt því fyrir sé hve mikið kæmi í okkar hlut af makríl ef ESB réði þar eitt málum.
Í samskiptum við aðrar þjóðir gerum við tvíhliða samninga á okkar eigin forsendum. Gildir það jafnt um einstök lönd og ríkjasambönd eins og ESB. ESB-viðræðurnar hafa tekið til sín tíma, afl og fjármuni og tafið fyrir endurreisn og uppbyggingu atvinnulífs eftir hrun. Rekinn hefur verið áróður fyrir því að fólk bíði eftir jólapökkum frá útlöndum. Þeim blekkingarleik þarf að linna.
Ég hef horft upp á það á síðustu árum að hin sterkustu hné bogna fyrir erlendu valdi og þrýstingi. Þetta hefur átt sér stað víða í samfélaginu en einnig á Alþingi þegar samþykkt var að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Í þeirri atkvæðagreiðslu bognuðu hné sem margir héldu sterkust fyrir. Á Alþingi eru það fyrst og síðast einstaklingarnir sem þjóðin velur sem ráða úrslitum með atkvæði sínu.
Afstaða mín og barátta gegn umsókn og aðild að ESB er öllum kunn. Flokkar og samtök sem nú bjóða fram, að Regnboganum einum undanskildum, eru annaðhvort ESB-sinnaðir eða forðast að ræða þetta stærsta mál þjóðarinnar nú í aðdraganda kosninga. Þótt einstakir þingmenn eða frambjóðendur þeirra tali fjálglega um persónulega andstöðu sína eru innan þeirra raða einstaklingar sem hafa stutt aðlögunarviðræður við ESB til þessa.
Sjálfstæðið er sívirk auðlind heitir bók Ragnars Arnalds fyrrverandi alþingismanns og ráðherra sem skrifuð var til varnar og sóknar fyrir fullveldi Íslands og sjálfstæði en gegn umsókn og aðild að Evrópusambandinu. Ég hvet alla til að lesa hana.Stöndum keik og treystum á okkur sjálf
Við eigum mikla sóknarmöguleika í okkar eigin auðlindum, fólkinu, hugviti, sögu og menningu, sjávarútvegi, landbúnaði og matvælavinnslu, ferðaþjónustu sem og fjölbreyttri ósnortinni náttúru svo nokkuð sé talið. Þar standa byggðir Norðvesturkjördæmis sterkt. Sækjum aftur skerðinguna á heilbrigðisþjónustunni og stöndum vörð um grunnstoðir samfélagsins, ekki síst hinna dreifðu byggða. Væri ekki nær að þeir milljarðar sem nú er varið til ESB-umsóknar færu þess í stað til fjársvelts heilbrigðiskerfis?
Góðir landsmenn! Við skulum treysta og trúa á okkur sjálf eins og við höfum gert um aldir og byggja upp samskipti við aðrar þjóðir með gagnkvæmum tvíhliða samningum.
Ég býð mig fram fyrir sömu gildi og ég hef ávallt staðið fyrir. Stjórnmál snúast um traust. Ég bið um þinn stuðning. Regnboginn þarf stuðning þinn í kosningunum á laugardag!Miðvikudagur, 24. apríl 2013
Fjaran hvergi fallegri en í Norðurfirði á Ströndum
Móðir mín sem er fædd í Norðurfirði á Ströndum sagði að hvergi væri fjaran og sandurinn fallegri en einmitt þar. Undir það get ég og fjölskyldan tekið.
Að sjálfsögðu fór ég norður í Árneshrepp á Ströndum til að heilsa upp á ættmenni og vini á hringferð minni um Vestfirði og Strandir í síðustu viku. Þótt snjór væri yfir Bölunum, mínu gamla heimasvæði, hlýnaði mér um hjartarætur þegar ekið var framhjá Asparvík, fæðingarstaðnum þar sem ég sleit fyrstu barnsskónum. Fjölskyldan flutti síðan í Bjarnarhöfn á Snæfellsnesi.
Í Árneshreppi var litið við á hverjum bæ að venju. Kvöldinu lauk svo þar fyrir norðan með því að ég fékk að mæta á vinnufundi hjá konunum í hreppnum á Kaffi Norðurfjörður. Þær Vigdís Grímsdóttir rithöfundur og María Guðmundsdóttir ljósmyndari leiddu samveruna en þar hefur verið komið reglulega saman í vetur. Mér var hugsað til þess að fyrir nokkrum árum þegar ég átti því láni að fagna að geta stutt við framtak heimamanna um að gera þetta hús upp og innrétta þar mjög hlýlega matar- og kaffistofu. Kaffistofan hefur aukið enn á góðan orðstír og þjónustu sem hægt er að fá í Árneshreppnum.
Auðvitað var spurt um vegina sem þá stundina voru hálfófærir vegna snjóa. Ég hef á undanförnum árum barist fyrir bættum vegasamgöngum um Strandir og í Árneshrepp. Ég lofaði á fundinum með konunum þarna í Norðurfirði að fengi ég þar nokkru um ráðið myndi heilsársvegur í Árneshrepp verða mitt forgangsmál. Árneshreppurinn er falleg og gjöful byggð og ungt fólk með börn í skóla hefur flutt á svæðið. Þar voru nú menn á fullu í grásleppuútgerð og mikið fjör er í strandveiðunum á sumrin. Ferðaþjónustan er mjög ört vaxandi og er talið að um 5.000 manns hafi komið í hina frábæru sundlaug í fjöruborðinu á Krossnesi í sumar.
Þær sögðu mér það konurnar að þær hefðu hugleitt að stofna félag, Sandlóurnar, og bjóða fram til Alþingis. Góð hugmynd. Ég fullvissaði hópinn um að skoðanir þeirra og væntingar rúmuðust vel innan Regnbogans, framboðsins sem ég leiði í Norðvesturkjördæmi og þær vissu fyrir hvað ég stæði. Oddný á Krossnesi, oddviti hreppsins, var að prjóna afar fallega sokka einmitt í litum regnbogans sem smellpössuðu við framboðið.
Með gleði í hjarta yfirgáfum við Árneshreppinn og hið þróttmikla og baráttuglaða fólk sem þar býr. Stefna tekin á Ísafjörð og komið að Reykjanesi um miðnættið og gist á hinu forna skólasetri Vestfirðinga sem nú er velbúið og notalegt hótel.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 25.4.2013 kl. 14:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)