Þriðjudagur, 19. mars 2013
Enn verður opinberum störfum fækkað á landsbyggðinni - nú starf sýslumanns lagt niður
Skessuhorn: |
Loka á sýslumannsembættinu í Búðardal og skera niður þjónustuna án nokkurs samráðs við heimamenn- byggðastefnan í verki.? !! |
19. mars 2013 |
Áslaug Þórarinsdóttir sýslumaður í Búðardal hefur sagt starfi sínu lausu og hefur sýslumanninum í Stykkishólmi, Ólafi K. Ólafssyni, verið falið að gegna störfum sýslumanns í Búðardal þegar hún lætur af störfum. Sveitarstjórn Dalabyggðar undrast að ekki hafi verið upplýst formlega um þessar ráðstafanir innanríkisráðuneytisins og samþykkti í einu hljóði á sveitarstjórnarfundi í gær að óska eftir fundi með ráðherra vegna málsins. Eyþór Jón Gíslason oddviti sveitarstjórnar segir í samtali við Skessuhorn að engar upplýsingar hafi borist sveitarstjórn og málið því í ákveðinni óvissu. Við vitum í raun ekki hvort skrifstofa sýslumanns verður rekin hér áfram eða hvort þessi ákvörðun sé liður í fækkun sýslumannsembætta. Auðvitað yrði mikið áfall fyrir sveitarfélagið að missa enn fleiri störf fyrir háskólamenntað fólk en fyrst og fremst erum við óánægð með að okkur hafi ekki borist nein tilkynning um málið, segir Eyþór en auk sýslumanns er einn starfsmaður á skrifstofunni í Búðardal. |
Fyrir Alþingi liggja drög að frumvarpi til laga um framkvæmdavald og stjórnsýslu ríkisins í héraði. Þar kemur meðal annars fram að sýslumannsembættum verði fækkað úr 24 í átta. Stjórnsýsluumdæmin verði Vesturland, Vestfirðir, Norðurland vestra, Norðurland eystra, Austurland, Suðurland, Suðurnes og höfuðborgarsvæðið en þetta er sama umdæmaskipting og lagt er til að gildi fyrir löggæsluna í landinu samkvæmt nýju frumvarpi þar að lútandi. Frumvarpið kveður á um að hið nýja skipulag taki gildi 1. janúar árið 2015. Ljóst er að innanríkisráðherra er þegar farinn að gera breytingar miðað við að frumvarp hans nái fram að ganga. Þannig hefur sýslumaðurinn á Blönduósi tekið yfir starfsskyldur sýslumannsins á Sauðárkróki eftir að Ríkarður Másson sýslumaður lét af embætti sökum aldurs á síðasta ári." þannig hljóðar frétt Skressuhornsins í dag.Svo tala menn réttilega í orði um að efla þurfi löggæslu á landsbyggðinni og hafa lögboðið samráð við heimaaðila um skerðingu á þjónustu eða tilflutning og niðurlagningu starfa. Í verki verður raunin allt önnur. Ég varaði við þessum mikla niðurskurði til löggæslu á landsbyggðnni og jafnframt lagðist ég gegn fækkun sýslumanna á landsbyggðinni. Frekar átti að færa til þeirra verkefni frá stjórnsýslunni á höfuðborgarsvæðinu, láta sýslumenn halda hlutverki sínu í almennri löggæslu á sínum heimasvæðum. Á það var ekki hlustað. Nú harma menn niðurskurð í löggæslu á landsbyggðinni og hafa skrifað um það sérstaka skýrslu, nokkuð sem allir máttu sjá fyrir og bent var á við gerð síðustu fjárlaga. Frumvarp til breytinga á lögum um sýslumenn hefur enn ekki verið samþykkt frá Alþingi og verður vonandi ekki. Samt er farið að vinna samkvæmt því að svo sé. |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 20.3.2013 kl. 00:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 19. mars 2013
ESB kortleggur Ísland
Við opnun Evrópustofu - áróðurs og kynningarmiðstöðvar Evrópusambandsins var sendiherrann Timo Summa ekki í vafa um til gang hennar: víðtæk gagnasöfnun um skoðanir fólks og afstöðu og hvernig mætti hafa áhrif á viðhorf Íslendinga til inngöngu í ESB: (Mbl. 10.11.2010)
Bein afskifti af innanríkismálum Íslendinga
Við viljum skilja upplýsingaþörf ólíkra hópa. Hvað veit fólk og hvað veit það ekki?Hver eru, svo dæmi sé tekið, viðhorf og upplýsingaþörf ungs fólks, háskólafólks eðaellilífeyrisþega? segir Timo Summa, formaður sendinefndar ESB á Íslandi, umfyrirhugað kynningarstarf sambandsins á Íslandi næstu misserin.Við lítum á mismunandi hópa og hver afstaða borgarbúa eða fólks á landsbyggðinni ertil aðildar. Við viljum vita þetta svo við getum undirbúið kynningargögn í samræmi við Við viljum vita hvar eyður eru í þekkingunni og reynum í framhaldinu að leysa það.
Spurður um umfang kynningarátaksins svarar Summa því til að milljón evra, eða 155milljónir króna, muni renna til kynningar á ESB á Íslandi á næstu tveimur árum.
Í fyrstu sé gert ráð fyrir fjórum til fimm starfsmönnum sem hafi það að fullum starfa að dreifaupplýsingum um sambandið til almennings. Þá muni skrifstofan í Aðalstræti og útibúhennar á Akureyri styðja fyrirlestrahald og annað kynningarstarf. Segir í mbl. viðtali við sendiherra ESB í nóv. 2010
Áróður og njósnir Nató og Bandaríkjanna fyrrum
Ýmsum finnst harkalega ákveðin ályktun landsfundar Sjálfstæðisflokksins um að loka skuli Evrópustofu og stöðva beinan áróður þessa erlenda ríkjasambands hér á landi.Hanna Birna Kristjánsdóttir varaformaður flokksins kvartar undan þessari ályktun í viðtali í gær og telur hana ef til vill ganga of langt. Mín skoðun er sú það átti aldrei að leyfa rekstur áróðurmiðstöðvar Evrópustofu hér í landi. Ég held hinsvegar að flutningsmenn þessarar tillögu á landsfundi Sjálfstæðisflokksins hafi nákvæmlega vitað hvað þeir voru að leggja til. Þeir þekktu jafnvel frá fyrstu hendi áróður og njósnastarfsemi erlendra stórvelda hér á landi á kaldastríðasárunum s.s. Nató og Bandaríkjanna sem einskis svifust í þeim efnum.Áróðursmiðstöð ESB á að loka
Það er með ólíkindum hvernig þessi áróðursmiðstöð ESB hefur fengið að starfa hér óáreitt og misnotað ákvæði Vínarsáttmálans um friðhelgi erlendra dilópata . Áttu þessar aðildarviðræður ekki að fara fram á hlutlausan hátt og án íhlutunar frá hinu ágenga ríkjasambandi ESB.? Hvernig á þjóðin að fá næði til að mynda sér afstöðu ef hún er stöðugt undir áróðri, þrýstingi og mútufé frá ESB. Þessi vinnubrögð með áróður ESB eru á allt aðra lund en boðað var í þeirri þingsályktun sem Alþingi samþykkti illu heilli á sínum tíma.
Kommisararnir í Brussel kunna sitt fag og ráða vegferðinni
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)