Lítill áhugi á ESB í Noregi !

Prenta fréttSenda frétt
Lítill áhugi á ESB í Noregi

"Stuðningsmönnum þess að Noregur gangi í Evrópusambandið virðist fækka stöðugt. Ný skoðanakönnun um ESB-aðild sýnir að þeir hafa aldrei verið færri en um þessar mundir.

Einungis þriðjungur þeirra, sem spurðir voru, vill að Noregur gangi í Evrópusambandið. Það er fjórum prósentustigum færra en í síðasta mánuði. Eindregnir andstæðingar ESB-aðildar eru 56%. Þrettán mánuði í röð hefur yfir helmingur þjóðarinnar verið á móti því að hún gangi í ESB."

Ruv.15.11. 2008.

Ættum við ekki að heyra rök Norðmanna sem búnir eru að fara í gegnum samninga við ESB og hafna  þeim í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þeir vita vel  hvað er í boði.  Staða okkar er líka sú  að við eigum langt í land að uppfylla skilyrði til inntöku í ESB. Við verðum að treysta á okkur sjálf, endurvinna traust og virðingu erlendis  og vinna okkur út úr vandanum með reisn.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband