Föstudagur, 6. nóvember 2015
Uppeldis- og menningargildi skólamötuneyta
Matur, val á hráefni í mat, matseld og matarlykt er mikilvægur þáttur í uppeldi og þroska barna og unglinga. Lokun skólamötuneyta og verksmiðjuvæðing skólamáltíða frá stóru miðlægu eldhúsi er spor í kolranga átt.
Mér finnst í raun yfirvöld sem gera slíkt að forgangsmáli þurfi að endurskoða hvað þau meina með skólastefnu, uppeldis og menningarhlutverki skólanna. Miklu frekar ætti að tengja börnin meir við einmitt þennan þátt í starfinu, val á hráefni í matinn og matseldina sjálfa.
Matarlyktin og nándin við þennan einn mikilvægasta þátt holls lífernis ætti frekar að vera skipulagður og virkur þáttur í skólastarfinu sjálfu.
Ég tek því heilshugar undir með Gunnari Svanberg Bollasyni, formanni félags faglærðra matreiðslumanna í grunnskólum Reykjavíkurborgar sem birtist sem opnugrein í Fréttablaðinu í dag og ber yfirskriftina:
" Nei við miðlægu eldhúsi fyrir grunn- og leikskóla".
Gunnar varar við áformum um : "að úthýsa matreiðslunni úr skólunum í miðlægt verksmiðjueldhús úti í bæ, sem keyrir matinn í hitabökkum út í skólana".
Og Gunnar leggur áherslu á mikilvægi "á góðum mat handa börnum og starfsfólki".. "Til þess að svo megi verða þarf að bæta mönnun og starfsaðstæður þeirra sem sinna þjónustinni í skólunum". Og áfram segir Gunnar
"Foreldrar kennarar og skólastjórnendur vita að aðgengi barna að hollum og góðum mat er grunnforsenda fyrir velferð og vellíðan í leik og starfi barna".....
"Börnin okkar eiga skilið annað og betra en fjöldaframleiddan verksmiðjumat sem hendist um í bílum í hitabökkum löngu áður en hann er framreiddur" segir Gunnar að lokum.
Menning- hollusta- matarást
Í umræðunni um hollustu og heilbrigði, matarmenningu og heimilslegt yfirbragð hlýtur að vera mikilvægt að fylgja því eftir ekki aðeins á orði heldur einnig á borði og það í uppeldistöðvunm barna sem skólarnir eru.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:22 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.