Mánudagur, 19. maí 2014
Sýslumenn skornir niður á landsbyggðinni
Sýslumannsembættum á landinu fækkar úr 24 í 9 samkvæmt tillögu innanríkisráðherra og samþykkt Alþingis á lokadegi þingsins. Á mannamáli þýðir þetta gríðarleg skerðing á þjónustu og fækkun stjórnsýslustarfa á landsbyggðinni.
Samtímis álykta sveitarstjórnir um allt land um eflingu opinberrar þjónustu og mótmæla niðurskurði og stöðugum flutningi á stjónsýslustörfum af landsbyggð til Reykjavíkur. Þótt sýslumannaskipan í landinu þurfi í sjálfu sér ekki standa óbreytt þýðir þessi hastarlegi niðurskurður og fækkun embætta aukna fjarlægð íbúanna til að sækja sér þjónustuna. Jafnframt sem það er aukin kostnaður vegna fjarlægðar og ferðatíma.
Samfélagsábyrgð stjórnvalda
Með því að skera niður þjónustumiðstöðvar sínar eru stjórnvöld að víkja sér undan þeirra ábyrgð að efla og styrkja atvinnu, byggð og grunnstoðir nærsamfélagsins á landsbyggðinni.
Óljós loforð um flutning á nýjum verkefnum samtímis til að bæta þessa samfélagsskerðingu upp hefur hingað til ávallt reynst blekkingin ein. Hver hugsar út frá sér. Sýslumaður skorinn hér, pósthús skorið, banakútibúi lokað, heilbrigðisstofnanir sneiddar niður og svo mætti lengi telja
Á öllu Vesturlandi verður 1 sýslumaður en 3 skornir. Á Vestfjörðum verður 1 sýslumaður og 3 skornir og Norðurlandi vestra verður einn sýslumaður en annar skorinn.
Á Norðurlandi eystra verður 1 sýslumaður og 2 skornir. Á Austurlandi verður 1 sýslumaður og 2 skornir.
Á Suðurlandi verður 1 sýslumaður og 2 skornir. Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum fær að halda sér.
Það er athyglisvert í umsögnum margra sveitarfélaga og landshlutasamtaka að þau sýna skilning á þörf og breytingum og hagræðingu, en stuðningur þeirra er skilyrtur því að höfuðstöðvar nýrra sýslumanna verði á viðkomandi heimasvæðum þeirra. Þannig er hægt að etja sveitarfélögum saman og ná fram niðurskurðinum
Sveitarstjórnarmenn spyrji landsbyggðarþingmenn ríkisstjórnarinnar
Það þynnist stöðugt hryggurinn á landsbyggðar þingmönnum sem hafa til þessa reynt að standa vörð um m.a. sýslumannsembættin. Minnist ég hástemmdra yfirlýsinga þingmanna sem jafnvel sitja enn á þingi og styðja núverandi ríkisstjórn. Þeir mótmæltu sömu áformum fyrrverandi ríkisstjórnar um niðurskurð stjórnsýslustofnanna á landsbyggðinni, en þegja nú þunnu hljóði og loka eyrum fyrir varnaðar orðum kjósenda þeirra og forystumanna í héraði.
Ég lagðist gegn þessum mikla niðurskurði á stjórnsýslustörfum á landsbyggðinni bæði sem ráðherra og þingmaður og átti hlut að því að stöðva hann á sínum tíma. Ég hélt að með aukinni fjarskiptatækni væri hægt að flytja störf og verkefni frá Reykjavík út á land, en ekki öfugt.
Hvar eru þingmenn Norðvesturkjördæmis ?
Harðast kemur niðurskurðurinn niður á Vesturlandi, Vestfjörðum, Norðurlandi Vestra og Austurlandi. Ég hef hlustað á forystumenn framboða um land leggja áherslu á eflingu opinberrar þjónustu og verndun starfa í heimahéraði. Þeir ættu að spyrja þingmenn Framsóknar og Sjálfstæðisflokks sem nú stýra niðurskurðinum í þeirra heimahéruðum. Mér verður ekki hvað síst hugsað til þingmanna Norðvesturkjördæmis með ráðherra og forseta Alþingis í broddi fylkingar. Það heyrðist í þeim hér áður fyrr, en nú er þögnin ein nema ef fréttist af þeim í útlöndum.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 20.5.2014 kl. 11:22 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.