- Svík þú aldrei ættland þitt í tryggðum -

 Vinstri - Græn  voru stofnuð m.a til að berjast gegn umsókn og aðild að ESB. Flokkurinn vann mikinn kosningasigur vorið 2009 á grundvelli heiðarlegra og einfaldra gilda sem fólk skildi. Trúnaður, traust og orðheldni átti ekki að vera innantóm slagorð.
Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri Grænna fékk í hendur erfitt bú en um leið einstök tækifæri. Það var mikil ólga í íslensku samfélagi veturinn 2008-2009 þegar þúsundir höfðu tapað eignum og atvinnu. En það var líka að finna með þjóðinni mikla samstöðu og mikinn vilja til að standa saman í þeim brotsjó sem þá gekk yfir okkur. Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur fékk tækifæri til að virkja þá samstöðu og skapa samhug hjá þjóð í vanda en hún valdi oftast ófrið jafnel þótt friður væri í boði.
Launmál í stað samstöðu
Til þess að ná samstöðu með þjóðinni átti það að verða höfuðatriði að forgangsraða í þágu almennings og vinna af einurð á skuldavanda heimilanna, atvinnuleysinu sem var okkur nýtt og er mikið böl. Við gengum inn í kosningarnar 2009 með þá von að svo mætti verða en strax eftir kosningar komu fram í dagsljósið launmál þau sem hluti af mínum fyrrverandi þingflokki og samstarfsflokkurinn Samfylkingin stóðu að. Ég segi launmál því framámenn sem höfðu staðið fastir fyrir gegn ESB aðild Íslands, svarið eiða gagnvart kjósendum, sneru við blaðinu eftir kosningar og gengust inn á að gera þetta vandasama deilumál að höfuðmáli komandi kjörtímabils.
Einsmálsmennirnir voru ekki við sem börðumst þar í móti heldur hinir gengu gegn loforðum sínum og settu allan þunga yfirstandandi ríkisstjórnarsamstarfs í það að þóknast Evrópusambandinu og vinna að aðlögun stjórnkerfis okkar að þeirra kröfum.
Vandi þúsunda heimila, atvinnuleysið og skuldavandi ríkissjóðs urðu að víkja.
Árangur
Visulega náðist árangur í minni ráðherratíð:
Ég nefni strandveiðarnar, síld fyrir smábátaveiðar, makríll - deilt út á bátaflokka, auknar byggðatengingar aflaheimilda og skötuselsmálið fræga sem rauf skarð múrinn kringum kvótakerfið.

Virðulegi forseti. Góðir Íslendingar
"Svík þú aldrei ættland þitt í tryggðum" var lagt í munn Þórðs Kakala þegar Noregskonungur beitti öllum brögðum til að leggja undir sig landið.

Vinstrihreyfingin grænt framboð var stofnuð m.a til að berjast gegn umsókn og aðild að ESB. Flokkurinn vann mikinn kosningasigur vorið 2009 á grundvelli heiðarlegra og einfaldra gilda sem fólk skildi.
Trúnaður - traust - orðheldni
Trúnaður, traust og orðheldni voru af minni hálfu ekki innantóm slagorð. Ein fyrsta setningin í stofnskrá Vinstri grænna kvað á um fullveldi og sjálfstæði Íslands.  Ég lofaði kjósendum mínum því að standa við stefnuskrá flokksins og grunngildi. Ég myndi berjast gegn umsókn og aðild að ESB. Þegar Alþingi hafði samþykkt umsóknina gætti ég að því sem ráðherra að staðið væri á rétti Íslendinga og lagðist gegn fyrirfram aðlögun og undirgefni við ESB í þeim viðræðum. - Það er ekkert sem heitir að kíkja í pakann þegar sjálfstæði þjóðarinnar er annarsvegar. Enda hefur það ítrekað komið fram að ESB veitir engar varanlegar undanþágur, þeir sem halda því fram eru vísvitandi að blekkja þjóðina.
Sjálfstæðið er sívirk auðlind
Sumir flokkar vilja ganga í ESB og segja það opinskátt. Hitt er öllu verra hjá þeim sem segjast vera á móti en gera svo allt annað. Samþykkt síðasta landsfundar VG um að halda áfram aðildarviðræðum við ESB út í næsta kjörtímabil gengur þvert á stofnskrá VG og grunngildi hans.Þarna skiljast leiðir. Maður leikur sér ekki að sjálfstæði Íslands og fullveldi þjóðarinnar, fullveldi sem þjóðin barðist fyrir í aldir að endurheimta. " Sjálfstæðið er sívirk auðlind" ( R. A.)
 Þjóðin veit hvar hún hefur mig í þessum efnum.
Baráttan um að verja sjálfstæði Íslands og fullveldi heldur áfram.
( Ræða á eldhúsdegi 13. mars 2013)





--

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband