Standa þarf vörð um sjávarbyggðirnar - veiðar og vinnsla í heimabyggð

Efling dagróðrarflotans og fiskvinnslunnar í sjávarbyggðunum er   bæði hagkvæm, umhverfisvæn  og eykur stöðugleika í búsetu á landsbyggðinni. Þessum áherslum þarf að ná fram  með jákvæðum breytingum á fiskveiðistjórnunarkerfinu.

Það er best gert m.a með auknum byggðatengingum aflaheimilda  og rétti íbúanna til auðlindar sinnar, takmörkun á hlutfallslegri stærð fyrirtækja og hertum reglum gegn samþjöppun og krosseignatengslum stórfyrirtækjanna.

Óttast að smærri útgerðir fari í þrot

Veiðigjaldstaka  í sjávarútvegi verður að vera hluti af heildarumgjörð atvinnuvegarins og hluti af þeim lögum en ekki í sérlögum eins og nú er lagt til. Hættan er sú að menn blindist í gjaldtökunni og láti stjórnast af síhungruðum ríkissjóði en missi heildaryfirsýnina og vanmeti áhrifin á einstakar byggðir og útgerðarform.

 Meðf. er viðtal við mig á Stöð 2 sl.miðvikudag um málið

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband