Sunnudagur, 25. október 2015
Mun Sjálfstæðisflokkurinn svíkja í ESB málinu ?
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins ætlar að skilja Evrópusambandsumsóknina eftir á sama stað og hún var þegar þeir tóku við í ríkisstjórn. Umsóknin var þá stopp og gat ekki haldið áfram nema ríkisstjórnarflokkarnir veittu henni brautargengi.
Það var Alþingi sem samþykkti að sækja um aðild, hversu lögleg sem sú aðgerð var og það var Evrópuþingið sem samþykkti beiðnina. Hjá hvorugum þessum hefur umsóknin verið afturkölluð eða send til baka. Næsta ríkisstjórn getur því óhindrað tekið upp þráðinn á ný og haldið áfram umsóknarferlinu á sínum forsendum. Þetta eru mikil vonbrigði fyrir okkur öll sem erum andsnúin áformum um inngöngu Íslands í Evrópusambandið.
Sjálfstæðisflokkurinn lofaði því fyrir kosningar að afturkalla umsóknina með óyggjandi hætti og byrjaði feril sinn í ríkisstjórn með það að markmiði að standa við loforð sín samanber meðf. frétt. Formaðurinn kallar eftir trausti. Það fæst aðeins ef menn standa við orð sín.
Umsóknin verði dregin til baka
ngflokkur Sjálfstæðisflokksins samþykkti á fundi sínum í dag að umsóknin um inngöngu Íslands í Evrópusambandið yrði dregin til baka í samræmi við þingsályktunartillögu sem utanríkisráðherra myndi leggja fram á Alþingi. Þetta staðfestir Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is.
Niðurstaða þingflokksins er að þingsályktunartillaga utanríkisráðherra um að draga aðildarviðræðurnar til baka var samþykkt út úr þingflokki Sjálfstæðisflokksins, segir Ragnheiður. Spurð hvort niðurstaðan hafi verið einróma svarar hún: Við erum ekkert vön að greina frá því hvernig það er. Hún er bara afgreidd út úr þingflokknum.
Sama niðurstaða varð á þingflokksfundi Framsóknarflokksins sem fram fór í dag að sama skapi: Þetta var samþykkt einróma út úr þingflokknum, segir Sigrún Magnúsdóttir, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, í samtali við mbl.is.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)