Mánudagur, 5. maí 2014
Að naga þröskuldana í Brüssel
Það virðist of stórt mál fyrir Sjálfstæðisflokkinn að standa við kosningaloforð og landsfundarsamþykkt um afturköllun umsóknarinnar að ESB. Ummæli Bjarna Benediktssonar formanns flokksins í Mbl. um að of hratt hafi verið farið í því máli, hljóta að vekja furðu. Bjarni: Evrópumálið of fyrirferðamikið
Flestir bjuggust við að ríkisstjórnarflokkarnir Framsókn og Sjálfstæðisflokkur myndu efna loforð sín og afturkalla umsóknina strax eftir kosningar í fyrra.
Að fara í bakið á utanríkisráðherra
Þegar svo loksins kom fram ríkisstjórnartillaga utanríkisráðherra í febrúar sl. um að Alþingi samþykkti afturköllunina hafa ýmsir ráðherrar og þingmenn stjórnarflokkanna hlaupið fram á völlinn og reynt að slá fæturna undan ríkisstjórninni í þessu máli. Þessir sömu ráðherrar og sömu þingmenn hlutu kosningu m.a. á grundvelli einarðar stefnu og loforða þessara flokka í ESB málinu. Umsóknin skyldi afturkölluð þegar í stað. Nú síðast fer sjálfur formaður Sjálfstæðisflokksins í bakið á utanríkisráðherra, leggst á þröskuldinn og segir:
Ég held að það sé öllum ljóst að það hafi verið farið fullbratt á eftir skýrslunni fram með tillöguna
Og þó formaður Sjálfstæðisflokksins ljúki vandræðalegu viðtali sínu með því að segja:
Hvað sem öllu öðru líður þá er þessi ríkisstjórn ekki að fara í viðræður við Evrópusambandið. Það er auðvitað aðalatriði málsins
þá virðist hann vera á leiðinni á hnén með Halldóri Halldórssyni oddvita sjálfstæðismanna í Reykjavík sem ætlar að halda áfram að naga þröskuldana í dyragættum Brussel .
Loforð skulu standa
Svo lengi sem umsóknin verður ekki afturkölluð og gert hreint borð mun þröskuldanagið í Brüssel halda áfram þvert á stefnu og kosningaloforð núverandi ríkisstjórnarflokka.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)