Miðvikudagur, 31. desember 2014
Afturköllun umsóknar að ESB er næsta mál
Framsókn- og Sjálfstæðisflokkur lofuðu í aðdraganda síðustu alþingiskosninga að afturkalla strax og afdráttarlaust umsókn Íslands að Evrópusambandinu kæmust þeir til valda.
Flestir bjuggust við því að þetta loforð yrði efnt strax á fyrsta þingi nýrrar ríkisstjórnar.
Því miður reyndist ekki nægur dugur til þess. En nú verður ríkisstjórnin að taka á honum stóra sínum.
Þegar þing kemur saman í lok janúar verður afturköllun ESB -umsóknarinnar að komast á dagskrá þingsins og afgreiðast.
Áramótaávörp forystumanna ríkisstjórnarinnar voru því miður ekki upp á marga fiska í þessum efnum.
Vonandi verða efndir kosningaloforðanna rismeiri á nýju ári og ESB- umsóknin verði afturkölluð.
Gleðilegt nýtt ár
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)