"Lýsi ykkur ćtíđ lífsins sól"

 

Jólin, hátíđ ljóss og friđar eru nú gengin í garđ. Á ţessum  dögum sameinast  stórfjölskyldan  í gleđi og fögnuđi jólanna, á sjálfan ađfangadag eđa í ýmsum fjölskyldubođum um hátíđarnar. 

 Í erli dagsins megum viđ ekki ađ gleyma ađ fjölskyldan, vinir og  nágrannar er grunnur og kjölfesta samfélagsins. Ţar liggja ţau bönd sem binda okkur viđ lífiđ og gera okkur ađ heilsteyptum manneskjum. 

 Búsetubreytingar síđustu ár hafa einnig fćrt í sundur fjölskyldur, og jólin eru ţess vegna oft og tíđum sameiningarhátíđ ţar sem fólk hittir hvert annađ eftir langt hlé.

 

Ţrátt fyrir ađ jólahátíđin hafi fengiđ á sig aukinn verslunarblć og  bćđi  börn og fullorđnir fái jafnvel  fleira en " kerti og spil" í jólagjöf, ţá eru og verđa  jólin  fjölskylduhátíđ í víđri merkingu ţess orđs,  tákn mannlegrar hlýju, friđar, vonar og kćrleika.

 Kveđjan “gleđileg jól” hefur sígilda  ţýđingu og segir svo margt, en einfalt.

 Ég óska ćttingjum og vinum, landsmönnum öllum til sjávar og sveita gleđilegra jóla. 

Bestu ţakkir til ykkar allra fyrir gott samstarf, hvatningu og stuđning  á árinu sem er ađ kveđja.  Megi gćfan verđa ykkur hliđholl á nýju ári.  

Viđ, fjölskyldan  deilum međ ykkur jólakveđjunni frá kćrum vini,  séra Birni H. Jónssyni.  

„Lýsi ykkur ćtíđ lífsins sól,

ljúflega á tímans bárum,

Gefi ykkur Drottinn gleđileg jól

og gćfu á komandi árum.“    

 Sr. Björn H. Jónsson er frá Bakka í Viđvíkursveit, Skagafirđi.  Hann var  prestur í Árnesi á Ströndum en lengst af sóknarprestur Húsvíkinga.  


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband