Leikfélag Hólmavíkur- Saumastofan

Frábær sýning á Saumastofunni hjá Leikfélagi Hólmavíkur

Saumastofan, leikrit Kjartans Ragnarssonar var sýnt í Logalandi  í Reykholtsdal í gærkvöldi fyrir þéttsetnu húsi.

Við hjónin fórum á þessa sýningu í gærkvöldi og nutum frábærra  leikenda.

Sérstaklega var gaman að fylgjast með  tækni og færni ljósameistarans  Valdimars Kolka Eiríkssonar 13 ára sonur Katrínar dóttur okkar.

Valdimar Kolka er þar að stíga sín fyrstu spor við opinberan flutning stórleikrits og gerði það með miklum sóma

Í kvöld verður sýnt í Búðardal. Leikritið var frumsýnt á Hólmavík um síðustu helgi.

Leikfélag  Hólmavíkur var stofnað 1981 og hefur starfsemi þess verið ein sú  öflugasta meðal áhugaleikfélaga á landinu. 

Virkilega góð sýning og frábær skemmtun.

Takk fyrir okkur og til hamingju Leikfélag  Hólmavíkur.

Góða skemmtun í Dalabúð í kvöld


Bloggfærslur 1. desember 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband