Guðmundur Ingi - "Ráðherra náttúru landsins"

"Ég verð að sjálfsögðu umhverfisráðherra allra landsmanna en kannski fyrst og fremst náttúru landsins"  sagði nýr umhverfisráðherra Guðmundur Ingi Guðbrandsson í viðtali við ( Rúv. 03.12. Verður fyrst og fremst ráðherra náttúrunnar )

Náttúruvernd og umhverfismál hafa oft lent á hliðarlínunni í pólitískum ákvarðanatökum á undanförnum árum. Virðing fyrir náttúrunni og framtíðarsýn hefur oft verið takmörkuð og lotið í lægra haldi fyrir skammatíma gróðasjónarmiðum. Það er gott að náttúran hafi fengið góðan talsmann í ríkisstjórn

Óheppinn formaður Vestfjarðarstofu

Það var dapurt að heyra nýjan formann Vestfjarðarstofu á Ísafirði hnjóða í umhverfisráðherrann fyrir fram og draga trúverðugleika hans í efa. ( Hefur áhyggjur af nýjum umhverfisráðherra. Rúv 03.12.)

 Vafasamt er í hvers umboði formaður Vestfjarðarstofu  getur látið slík orð falla í garð ráðherrans, en það er alveg klárt að hann er hvorki að styrkja ímynd Vestfjarða né gera umræðunni gagn með þeim. 

 Einstæð náttúra Vestfjarða

Vestfirðir státa af einum dýrustu náttúruperlum landsins og einstæðu lífríki sem við öllum berum okkar ábyrgð á.  Að sjálfsögðu er byggðin og búsetan hluti af þeirri heildar mynd allri.  

 


Bloggfærslur 4. desember 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband