Siðanefnd Blaðamannafélagsins ?

Í hádegisfréttum Bylgjunnar sl. laugardag buldu á landsmönnum æsingsfréttir þess efnis að Gunnar Bragi Sveinsson alþingismaður hefði verið drukkinn, með dólgslæti og frammíköll  á söngleiknum Elly í Borgarleikhúsinu fyrr í mánuðnum.  
Þarna voru fjölmiðlar komnir í feitt. Ýmsir aðrir fjölmiðlar fylgdu og dreifðu fréttinni 

https://viljinn.is/…/sonur-gunnars-braga-nu-er-maelirinn-f…/

https://www.frettabladid.is/…/segir-frettir-af-meintri-dryk…

  Sonur Gunnars Braga, Róbert Smári  brást sorgmæddur og sár við á fésbókarsíðu sinni.  
 „Nú er mælirinn fullur. Hvenær er komið nóg?“ spyr Róbert Smári Gunnarsson, í tilefni hádegisfrétta Bylgjunnar, þar sem fullyrt var að faðir hans hefði verið drukkinn og með frammíköll á leiksýningunni Ellý á dögunum. DV og Fréttablaðið sló svo fullyrðingum Bylgjunnar upp sem frétt sl laugardag".

Róbert Smári Gunnarsson

„Ég var á þessari sýningu með pabba og Sunnu þann 18. janúar. Pabbi bragðaði ekki áfengi fyrir sýningu, né á sýningu og ekki eftir hana,“ segir Róbert Smári í færslu á fésbókinni sem Viljinn fékk heimild til að vitna til.
"Hversu lágt er hægt að leggjast? Hvenær er botninum náð? Hvað fær ,,blaðamann” til þess að halda þessu fram og búa svona til? Hvað ætla fjölmiðlar að leggja mikið á fjölskyldur stjórnmálamanna?!“
Róbert Smári kveðst skrifa þetta „með tárin í augunum, sár og reiður, að svona skuli nokkur skrifa án vísunar til sannleikans og að leggja þetta á okkur, okkur sem vitum að þetta er haugalygi"
„Sýningin var góð, við skemmtun okkur vel, hann greip ekki fram í og var bláedrú, allir voru til fyrirmyndar. Og öll vorum við sammála að um einhverja flottustu sýningu sem við höfum séð væri að ræða,“ segir Róbert Smári.

Um heiðarleika og friðhelgi einkalífs

Hér er ekki verið að leggja neitt inn í umræðuna um atburðina á " Klausturbar" né heldur atburðarrásina sem á eftir fylgdi.

Hinsvegar er verið að leggja áherslu á grundvallaratriði  í blaðamennsku og friðhelgi einkalífs 
 Seinni part sl. laugardags  eftir að fréttin hafði staðið yfir allan hádaginn, nokkra klukkutíma, fann ritstjórinn sig knúinn til að biðjast afsökunar, fréttin  væri ósönn og rakalaus og afturkallaði hana. 

"Gróa á Leiti" 
 Svo gæti virst sem fréttamenn þar á bæ hafa talið sig geta sloppið í gegn án þess að nokkur hreyfði litla fingri til varnar.

Fréttin hefði á skömmum tíma orðið að sannleika "Gróu á Leiti" sem margir virðast dá þessa dagana.

Fjöldi annarra leikhúsgesta á sömu sýningu hefur tjáð sig á fésbók, staðfest orð Róberts Smára og lýst mikilli vanþóknun á fréttaflutningnum, sem nú hefur verið borinn til baka.

Róbert Smári Gunnarsson á mikinn heiður skilið fyrir kjarkinn og áræðið að skrifa þennan pistil og hrekja  söguburð "pressunnar" um föður sinn ,  " með tárin í augunum " eins og hann segir. 
 Ég get sjálfur ekki orða bundist og maður spyr sig hvert er samfélagsumræðan komin.  

Siðanefnd blaðamannafélagsins 

 Væri ekki tilefni til þess að Siðanefnd Blaðamannafélagsins færi yfir viðlíka fréttaflutning og kanna hvernig hann kemst áfram  þar sem bornar eru alvarlegar og ósannar  ávirðingar á einstakling sem þykir liggja markaðslega vel við höggi?.

 Frjáls fjölmiðlun, heiðarleg og vakandi fréttamennska eru hornsteinar lýðræðis og mannréttinda.

Línan um persónufrelsi, friðhelgi einkalífs, mannréttindi og sannsögli hefur verið teygð á síðustu vikum og misserum.

Falsfréttir vaða uppi  

Falsfréttir vaða nú uppi um allan heim, eru ógn við lýðræðið og gera enn ríkari kröfur til vandaðar blaðamennsku. 

Væri ekki rétt að Siðanefnd Blaðamannfélagsins fjallaði um og léti eitthvað frá sér fara um  þá breyttu stöðu sem komin er upp í fjölmiðlun bæði hér á landi og í heiminum.

Öll umfjöllun tengd  "Klausturmálinu" gæti einnig verðskuldað slíka innri athugun.

 Vonandi hafa ekki allir fjölmiðlamenn talað sig vanhæfa eins og forseti Alþingis telur sig hafa gert af forsetastóli þingsins. 

 Róbert Smári Gunnarsson á mikinn heiður skilið fyrir að taka svo vasklega upp varnir gegn ósönnum fréttaflutningi "Gróu á Leiti" um föður sinn.

 

 


Klókindi Theresu May - Nauðasamningum hafnað

Breska þingið hafnaði nauðasamningum og afarkostum sem ESB hafði gert Bretum.  Þar með getur breska ríkisstjórnin haldið útgönguferlinu áfram  með frjálsar hendur.

Klukkan 11 hinn 29. mars 2019

 Dagsetning útgöngunnar liggur fyrir og henni verður ekki breytt þótt trúlega verði þrefað um það næstu daga.

Klukkan 11 að breskum tíma hinn 29. mars mun Bretland ganga úr ESB

Nauðasamningarnir voru felldir með það miklum mun að litlar líkur eru á að viðræður um nýjan samning verði teknar upp, þótt framkvæmdastjórn ESB muni þrýsta verulega á um það.

Framganga og frekja ESB í þessum ferli hefur verið með ólíkindum og keppst var  við að niðurlægja Breta sem mest. 

Við getum nú séð hver örlög okkar Íslendinga hefðu verið ef ESB sinnum hér á landi hefði tekist ætlunarverk sitt að troða okkur þar inn. 

Fríverslunarsamningur við Breta

Færeyingar hafa tilbúinn fríverslunarsamning við Breta um leið og útgangan er orðin að veruleika. Það sama eigum við Íslendingar að gera.

 


mbl.is Brexit-samningi May hafnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband