Þriðjudagur, 27. maí 2008
" Hráa kjötið" sjálfdautt á alþingi !
Skagabyggð „Hreppsnefnd Skagabyggðar mótmælir harðlega fram komnu lagafrumvarpi um að innleiða matvælalöggjöf ESB í íslensk lög. Ljóst er að þetta mun verða til þess að störfum hér á landi fækkar og lífskjör í dreifbýli versna mikið. Á sama tíma og nefndir á vegum ríkisins eru að störfum til að styrkja byggðina í dreifbýlinu er ríkisstjórnin að vinna gegn þeim markmiðum með fyrirhugaðri lagasetningu um matvælalöggjöf ESB. Veit ekki hægri höndin hvað sú vinstri gerir? Einnig má hafa í huga að þjóðhagsspár gera ráð fyrir auknu atvinnuleysi hér á landi á næstu árum. Það er vítavert gáleysi að leyfa innflutning á hráu kjöti til landsins vegna hættu á að hingað berist skæðir búfjársjúkdómar. Ekki verður séð að þörf sé á að dýraeigendum erfiðara fyrir en nú er að fá þjónustu dýralækna eins og fyrirhugað er samkvæmt lagafrumvarpinu. Lágmarks krafa er að gerð verði úttekt á þeim áhrifum sem þessi lagasetning kann að hafa á hagsmuni bænda, afurðastöðva og kjötvinnslur áður en lagafrumvarpið verður afgreitt á Alþingi. Réttast væri að hætta strax við þessa vitleysu og fella málið niður.
Húnavatnshreppur: Hreppsnefnd Húnavatnshrepps leggst alfarið gegn fyrirhugaðri innleiðingu ámatvælalöggjöf ESB og skorar á Alþingi að stöðva frumvarpið. Augljóst er að frumvarpið setur landbúnað og vinnslustöðvar í mikið uppnám, ógnar heilbrigði íslensks búfjár og setur matvælaöryggi þjóðarinnar í hættu. Húnavatnshreppur er mikið landbúnaðarsvæði og hreppsnefnd þykir sýnt að meðsamþykkt frumvarpsins verði afkomubrestur hjá íbúum sveitarfélagsins meðófyrirsjáanlegum afleiðingum. Hreppsnefnd Húnavatnshrepps vekur athygli á að forsætisráðherra skipaðiNorðvesturnefnd síðastliðið haust og hefur hún það hlutverk að styrkja byggð ogatvinnu á Norðvesturlandi“
Þingeyjarsveit:„Í Þingeyjarsveit er landbúnaður undirstöðuatvinnuvegur. Sveitastjórn Þingeyjarsveitar geldur varhug við að frumvarp sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um breytingar á ýmsum lögum vegna endurskoðunar á undanþágum frá I.kafla I. viðauka við EES samninginn og innleiðingar á reglugerð Evrópuþingsins (EB) nr. 178/2002 frá 28. janúar 2002 auk afleiddra gerða. (524. mál Alþingis) verði samþykkt án þess að kannað verði rækilega hver áhrif samþykkts frumvarpsins kunni að hafa á viðgang landbúnaður og vinnslu landbúnaðarafurðaí landinu.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:27 | Facebook

ernabjarnad
andreaolafs
ingibjorgelsa
valgeirb
hlynurh
saemi7
saedis
birgitta
baldis
polli
bjarkey
ellikonn
erlan
gutti
mosi
gullilitli
gullvagninn
heidistrand
hildurhelgas
hilmardui
drengur
hreinsamviska
ingolfurasgeirjohannesson
bestiheimi
svartur
joiragnars
kristinm
steinibriem
brv
vefritid
vest1
hallormur
toti1940
torduringi
iceberg
thuridurbjorg





