Föstudagur, 29. ágúst 2014
Ótrúlega aum framkoma við Færeyinga
Íslendinga neita færeysku fiskiskipi um þjónustu í íslenskri höfn vegna meintra deilna um makríl.
Færeyingar fá ekki olíu í Reykjavík Færeysku skipi með bilaða vél neitað um þjónustu á Íslandi
Mér finnst þetta óheyrileg framkoma gagnvart vinaþjóðinni Færeyingum þótt heimilt sé að beita slíkum aðgerðum gegn skipum frá öðrum löndum, þegar veitt er úr fiskistofnum sem ósamið er um. Ég sem ráðherra leyfði Færeyingum að landa hér makríl á sínum tíma.
Samningarnir um makríl hafa strandað á frekju og furðulegri afstöðu ESB til makrílveiða og rétti strandríkja í þeim efnum. ESB hefur beitt Færeyinga rakalausum og miskunnarlausum þvingunaraðgerðum og háværar hótanir hafðar uppi gagnvart Íslendingum. Þær hafa hvorki verið afturkallaðar né beðist afsökunar á. Nýjustu mælingar á magni og útbreiðslu makríls sýna að hann hefur sótt fram á nýjum beitilöndum langt norður og vestur í höf allt í kringum suðurodda Grænlands. Magnið í íslenskri lögsögu er meir en nokkru sinni og sama í hafinu í kringum Grænland.
Forsendur ESB og Norðmanna um að þeir ættu allan makríl, hvar sem hann veiddist eru löngu brostnar og voru aldrei fyrir hendi. Sem betur fer gengu Íslendingar ekki í gildru ESB sl. vetur um að semja um einungis ca. 12% hlutdeild.
Færeyingum var nauðugur einn kostur að semja vegna viðskiptabanns ESB á útflutning þeirra sem fyrir Færeyinga voru hrein hryðjuverk
Af einhverri óskiljanlegri linkind og þrælsótta þorðu Íslendingar ekki að beita sér með Færeyingum í viðskiptastríðinu við ESB. Ég hefði lagt til i þeirri stöðu að Íslendingar Færeyingar og Grænlendingar gerðu samkomulag innbyrðis vegna makrílsins.
Stuðningur Færeyinga þegar aðrir brugðust
Færeyingar voru þeir fyrstu sem veittu okkur stuðning þegar allar bankalínur voru lokaðar í upphafi hrunsins, þvert á aðgerðir annarra Norðurlanda og ESB ríkja.
Færeyingar björguðu Íslendingum frá smánarsamningum í makríl
Að meina skipum frá þessu vinaríki okkar, Færeyjum um þjónustu þó svo ósamið sé um makrílinn er mjög litilmannlegt og okkur til mikils vansa.
Færeyingar hafa eðlilega óskað eftir greinargerð frá íslensku ríkisstjórninni og telja að um brot á "Hövíkursamningi" landanna sé að ræða.
Kannski eigum við ekki hvað síst Færeyingum það að þakka að ekki var gengið inn í þá smánarlegu samninga sem Íslendingum stóð til boða sl. vetur.
Þeir samningar sem lá við að gengið yrði að, hefðu kostað okkur varanlegt tjón í framtíðarhlutdeild í makríl og milljarða króna í atvinnu og framleiðslutekjum.
P.S. kl. 21.15
Þessi framkoma gagnvart Færeyingum er bæði ómakleg og óréttmæt og okkur til minnkunar og gott að heyra að íslensk stjórnvöld skulu hafa fallið frá þeim.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:19 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.