Yfirlýsing vegna framboðsmála VG í Norðvesturkjördæmi

Ég undirritaður oddviti Vinstrihreyfingarinnar grænt framboð í Norðvesturkjördæmi hef ákveðið að gefa ekki kost á mér á framboðslista VG í komandi Alþingiskosningum.

Við Alþingiskosningar 2009 fékk Vinstrihreyfingin grænt framboð yfirburða kosningu í Norðvesturkjördæmi og 3 þingmenn. Enginn  vafi er á að einörð stefna og áherslur flokksins og okkar sem skipuðum þá forystusveit, átti hljómgrunn og stuðning  meðal íbúa  kjördæmisins og raunar langt út fyrir mörk þess. Kjörorðin  -vegur til framtíðar- vörðuð trausti og trúnaði voru aðalsmerki Vg í þeirri kosningabaráttu og eftir þeim gildum hef ég starfað.

Ég hef setið á Alþingi sem fulltrúi VG frá því flokkurinn fékk fyrst kjörna menn á þing 1999 og átt virkan hlut í að móta grunnstefnu flokksins og áherslur ásamt mörgu öðru góðu fólki.

 Það hafa orðið mér vonbrigði hvernig haldið hefur verið á mörgum stefnumálum VG síðustu misseri og vikið frá þeim gildum sem hann var stofnaður um.

 Afstaða mín og skoðanir í þeim málum eru öllum kunnar. Ég nefni hér umsóknina um aðild að ESB þvert á grunnstefnu flokksins og gefin kosningaloforð, niðurskurð til velferðarmála, ásamt því hvernig hert hefur verið með margvíslegum hætti að íbúum á landsbyggðinni.

Þótt ég hafi nú ákveðið að gefa ekki kost á mér til framboðs fyrir VG við næstu alþingiskosningar mun ég áfram leggja mitt af mörkum  og berjast fyrir þær  hugsjónir og grunngildi sem ég hef verið talsmaður fyrir og starfað eftir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband