Heimiliskettir ESB í ríkisstjórn mala

Utanríkisráðherra fer mikinn í ESB-umræðunni (eða ESB-vanræðaganginum) og skýlir sér nú á bak við „villikettina“ í VG. Allt tal um að einstakir ráðherrar hafi tafið þá vinnu sýnir best veruleikafirringu þeirra sem slíku halda fram. Staðreyndin er nefnilega sú að Evrópusambandið ræður alfarið ferð, bæði hvað varðar hraða og verklag í ESB viðræðunum.  Íslendingar hafa lagt fram sinn hluta í svokallaðri rýnivinnu, þ.e. samanburði á lögum og reglum Íslands og ESB og nú metur ESB á hvaða hraða Ísland getur aðlagast regluverki ESB.

Ekkert liggur fyrir um hvenær erfiðu kaflarnir í samningaviðræðunum um aðild Íslands að ESB verða opnaðir, þ. á m. sjávarútvegsmál, landbúnaðarmál og umhverfismál. Formaður aðlasamninganefndar Íslands segir að „ESB hefur sitt verklag,“ í Mbl. 21. febr. sl.

(„Erfiðu kaflarnir óopnaðir“) http://www.mbl.is/greinasafn/grein/1411777/

Erna Bjarnadóttir hagfræðingur Bændasamtakanna fjallar einnig um aðlögunarvinnu Evrópusambandsins í grein sinni: „Er sannleikurinn um ESB-aðildarviðræðurnar að koma í ljós?“: Forystumenn viðræðnanna af Íslands hálfu viðurkenna að ESB viðhafi sitt verklag og viðræðuferlið lúti lögmálum þess , ekki Íslands.“ http://mbl.is/greinasafn/grein/1412180/

Hinsvegar er það rétt að ég sem ráðherra neitaði að gefa eftir fyrirfram ýmsa grundvallarhagsmuni  Íslendinga og hafnaði fyrirfram aðlögun íslenskrar stjórnsýslu að ESB.

Utanríkisráðherra belgir sig nú út í fjölmiðlum á Íslandi og ræðir um ESB-umsóknina í brandarastíl eða eins og skemmtiefni á þorrablóti. En slíkur leikaraskapur er aðeins til að breiða yfir hversu lítill kall hann og aðrir íslenskir ESB-sinnaðir ráðherrar eru höndunum á ESB-risanum.

Össur og aðrir íslenskir ESB-ráðherrar mala þýðlega, sleikja útum og milli eyrna, eins og þægum húsköttum ber, og nuddar mjúkum feldinum um bera fætur ESB-stjúpunnar. Og hann, eins og aðrir góðir húskettir, uppsker strokur og klapp á kollinn og smá mjólkurdreitil á IPA-styrkja skálina sína.

En alvarleikinn er hins vegar sá, að í nýju áliti utanríkismálanefndar ESB-þingsins frá 7. febrúar sl. er húsköttunum hælt fyrir hvað þeir hafa gert vel eins og t.d. við uppstokkunina á íslensku ríkisstjórninni um síðustu áramót og hinsvegar minntir á hverju þeir þurfa að hraða  eins og að  aðlaga stjórnsýslu íslensks landbúnaðar og sjávarútvegs að kröfum ESB.

Samkvæmt áðurnefndu áliti Utanríkismálanefndar ESB er hin breytta ríkisstjórn nú, eins og góðum húsköttum sæmir, mun leiðitamari ESB en sú sem áður sat:

 „The European Parliament […] expresses confidence that the new Goverment will continue negotiations with an even stronger and more persistent commitment towards the accession process.“

Og heimiliskettir ESB í ríkisstjórn sleikja feld sinn og mala.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband